Forsíða » Rauntímaupplýsingar
Floti veitir þér allar mikilvægustu upplýsingarnar í rauntíma á mjög skýran hátt. Upplýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða tækja birtist í rauntíma ásamt stopptíma og upplýsingum um lausagang. Með Flota sérðu einnig veðurskilyrði á vegum í rauntíma.
Fyrirtækjum er almennt heimilt að vakta ferðir bíla sinna á vinnutíma starfsmanna sé það gert til að ná fram skýru og lögmætu markmiði, t.a.m. að bæta skipulag og skilvirkni, auka þjónustugæði, öryggi eða lækka rekstrarkostnað svo eitthvað sé nefnt.
Sérstök tilkynning til Persónuverndar á vöktun af þessu tæki er óþörf en þó er mikilvægt að öllum hlutaðeigandi starfsmönnum fyrirtækisins sé tilkynnt um vöktunina með góðum fyrirvara og með skýrum hætti. Algengt er að það sé gert á starfsmannafundi eða með tölvupósti. Persónuvernd fer ekki fram á skriflegt samþykki bílstjóra.
Rétt er að taka fram að vöktun með leynd er óheimil.
Floti býður meðal annars upp á viðkomuvöktun, aksturslagsgreiningu og viðhaldsvöktun.Verðlagning miðast við fjölda farartækja og virkni. Taktu stjórn, með Flota. Floti er fyrir fyrirtæki sem reka bílaflota af öllum stærðum og gerðum og hyggjast ná fram hagræðingu í rekstri og bættri þjónustu við viðskiptavini, með markvissri flotastýringu. Floti innifelur verkferla sem stuðla að réttu þjónustustigi með sem lægstum tilkostnaði.